10.6.2008 | 08:50
Ótrúlegt en satt!
Þrátt fyrir veikindi og volæði með tilheyrandi "nenni ekki að elda" og skorti á WorldClass ferðum í síðustu viku fóru 500gr af vigtinni í gær!
Nú get ég skammlaust sett nýja tölu í þrekþjálfann og brosað sæl, því 5,9kg eru farin frá upphafi lífsstílsbreytingar.
Nex er að útskrifast á laugardaginn og ég er með áður óþekkt vandamál því tengt. Ég þarf að fara að finna mér spariföt. Það sem slíkt er svosem ekki nýtt, en áður hefur það verið vegna þess að ég er orðin of stór í fötin mín - nú er ég orðin of lítil! Þá er bara að heilahrærast og rifja upp hvaða búðir selja falleg föt í yfirstærðum án þess að rukka yfirverð...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.