Hjúkkit!

Ég var farin að kvíða því að eiga í ágúst Blush

Sá fyrir mér dauðþreyttar ljósmæður eftir þessa svakalegu törn og engin nýútskrifuð hafði ráðið sig til sumarafleysinga.

Ég var búin að ákveða að fá að liggja inni og hvíla mig eftir fæðinguna, en skipti um skoðun eftir fréttirnar af "öllum þessum fæðingum". Ég held ég skipti ekki aftur um skoðun og reyni að fá að fara heim á fyrsta sólarhring þrátt fyrir að fæðingarnar séu færri en áður var talið.

Undirbúningur gagnvart vinnunni er hafinn: Tölvupóstar með tilkynningum um nýja tengiliði vegna verkefnanna minna fljúga út um allan heim og ég fría mig smátt og smátt á meðan. Ég stefni á að vera búin að losa öll verkefnin mín í næstu viku og dunda mér við gagnafærslu á milli netþjóna fram að fæðingu. Ég get gert það heima Grin


mbl.is 1.489 börn fæddust á LSH fyrri hluta árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er líka sett í ágúst og var farin að kvíða verulega fyrir þessu, sá fyrir mér að maður endaði inní kústaskáp í fæðingu

Gullý (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband