Allir á völlinn!

Stelpurnar okkar verða á Laugardalsvelli kl 19:15. Ég hvet alla til að mæta og styðja efnilegu stúlkurnar okkar.

Þar sem leikurinn mun dragast inn á háttatíma Stubbsins ætla ég samt að láta mér nægja að mæta á Fylkisvöllinn kl 16 og sjá Pólland - England. Á föstudag kl 16 er stefnan aftur tekin á Fylkisvöll til að sjá Þýskaland - Noreg. Ætli maður skreppi ekki þaðan á Kópavogsvöll kl 19:15 til að sjá okkar stelpur taka á móti dönsku stelpunum.

Ég tel nokkuð góðar líkur á því að við munum sjá efnilegustu knattspyrnukonur Evrópu þessa vikuna.

Eina vandamálið er að ég veit ekki hverja ég mun styðja á Fylkisvellinum. Ætli ég fagni ekki bara hverju marki sem er skorað. Grin


mbl.is Flautað til leiks á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband