22.10.2008 | 07:32
Ætli það sé ekki best að koma með update?
Þá er hersingin flutt til Hollands, nánar tiltekið til Hoogezand-Sappemeer í Groningen-sýslu. Þetta hefur gengið ágætlega hingað til. Þýskukennslan hjá Halldóri í MR er að koma að góðum notum og Babelfish er uppáhalds vefslóðin mín.
Stubburinn byrjar í skóla á mánudaginn og er farinn að hlakka til. Það er ekkert gaman að hanga heima með AuPairinni og Prinsessunni allan daginn. Hjálpardekkin eru farin af hjólinu hans, en það varð bara til þess að "hann vill frekar labba". Ég er ekki viss um að ég muni skrifa mikið hér inn á næstunni, en ég mun reyna að hafa samt eitthvað í gangi. það er ekki allt röflið í mér viðeigandi á barnalands-síðunni, þannig að ef mig langar að röfla eitthvað annað en fréttir af Hersingunni þá pósta ég það kannski hér...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.